Á bókhalds & ráðgjafarsviði VIRTUS starfa sérfræðingar á sviði, bókhalds-, fjármála-, reikningsskila- og rekstrarráðgjafar.

Megin verkefni okkar eru hýsing á fjármálatengdum verkefnum fyrir einstaklinga, félög, fyrirtæki og stofnanir. Við höfum starfað frá árinu 2001 og vinnum í dag fyrir yfir 300 viðskiptavini, innlenda og erlenda.

Á bókhalds- & ráðgjafarsviði er boðið upp á eftirfarandi þjónustu: 
 
  • Færsla og afstemming bókhalds
  • Virðisaukaskattsuppgjör
  • Launavinnsla
  • Gerð reikninga / fruminnheimta
  • Greiðsluþjónusta
  • Gerð ársreikninga
  • Framtalsgerð fyrir fyrirtæki
  • Framtalsgerð fyrir einstaklinga
  • Umsóknir um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda
  • Samskipti við skattayfirvöld vegna fyrirspurna og gagnaskila
  • Gerð milliuppgjöra, mánaðar, ársfjórðungs, hálfsárs o.s.frv.
  • Gerð viðskiptaáætlana
  • Almenn rekstrarráðgjöf
     
Hjá VIRTUS er að mestu leiti unnið í DK bókhaldshugbúnaði, en hluti af verkefnum eru unnin í öðrum kerfum. Rekstur vélbúnaðar,  hugbúnaðar, afritunartaka gagna og öryggismála er í höndum Skyggnis sem er hluti af Nýherja. Mikið er lagt upp úr þróunn kerfa VIRTUS og sérstök áhersla lögð á rafræn skil sem tryggir öryggi og lágmörkun villuáhættu.
 
Nánari upplýsingar um þjónustu og verð veitir framkvæmdastjóri VIRTUS Bókhalds & ráðgjafar, Þorkell Guðjónsson, thorkell@virtus.is
 
Laugavegi 170-172 • 105 Reykjavík • Sími 414 3200 • Símbréf 414 3249 • virtus@virtus.is