Launaumsjón
 
Sérfræðingar VIRTUS hafa í hverjum mánuði umsjón með útreikningi launa fyrir fjölda viðskiptavina. Í launaumsjón felst allt sem við kemur útreikningi launa og tengdra gjalda auk skila á mánaðarlegum og árlegum skilagreinum til hins opinbera, lífeyrissjóða og stéttarfélaga. Mikið er lagt upp úr rafrænum samskipum við skil og birtingu upplýsinga og birtast t.d. launaseðlar í netbönkum launþega.
 
Þegar kemur að útreikningi launa er mikilvægt að stuðst sé við nýjustu upplýsingar um skatta, gjöld og kjarasamninga. Hjá VIRTUS hefur verið fjárfest í þekkingu og hugbúnaði, þannig að ávallt sé hægt að veita bestu mögulegu þjónustu á svið launaumsjónar.