Fjárhagslegar áreiðanleikakannanir
 
Áreiðanleikakönnun felst í því að kanna rekstur og ástand fyrirtækis og er ætlað að varpa ljósi á raunverulega stöðu þess.
 
Yfirleitt er könnun unnin út frá síðasta uppgjöri félags og er þá sannreynd tilvist og verðmæti eigna efnahagsreiknings, gengið úr skugga um að skuldir og skuldbindingar séu rétt metnar og mat lagt á rekstur og áætlanir fyrirtækis.
 
Áreiðanleikakönnun á sér oftast stað við kaup og sölu fyrirtækja, skráningu félags á markað eða við hlutafjár- eða skuldabréfaútboð. VIRTUS býður þjónustu sérfræðinga við áreiðanleikakannanir en þar starfa löggiltir endurskoðendur, viðskiptafræðingar og lögmenn með margra ára reynslu.