Bókhaldsráðgjöf
 
Hjá VIRTUS starfar fjöldi sérfræðinga í bókhaldi. Bókhaldsráðgjöf felur í sér allt sem við kemur færslu og afstemmingu á bókhaldi og uppgjöri á virðisaukaskatti.

Í bókhaldsráðgjöf felst jafnframt ráðgjöf um uppsetningu bókhalds fyrir rekstraraðila með tilliti til þeirra upplýsinga sem ætlunin er að ná fram, ráðgjöf um val á bókhaldskerfi og þjálfun starfsmanna sem koma að bókhaldsmálum.
 
VIRTUS getur haft umsjón með bókhaldi viðskiptavina að öllu leyti, að hluta til, eða í afleysingum.