Bókhald
Reikningagerð / fruminnheimta
VIRTUS hefur umsjón með útsendingu reikninga fyrir fjölmarga viðskiptavini, stóra sem smáa. Reikningar eru sendir í pósti eða tölvupósti til viðtakanda, með eða án greiðsluseðils.
Ef reikningur er ekki greiddur á réttum tíma er mögulegt að hafa samband við greiðanda og kanna hvort reikningur hafi ekki borist, hvort athugasemdir séu við hann og/eða ítreka greiðslu hans.