Endurskoðun hefur verið skilgreind þannig:
 
Sjálfstæð athugun sem faglega hæfur og hlutlaus sérfræðingur gerir á reikningsskilum í þeim tilgangi að láta í ljós óháð álit á þeim.
 
Skráð félög, félög sem eru yfir ákveðnum stærðarmörkum, fyrirtæki í ákveðnum atvinnugreinum og fjölmargir opinberir aðilar eru skyldugir til að kjósa sér löggiltan endurskoðanda. Fjölmargir aðrir aðilar kjósa að láta endurskoða reikninga sína til að auka trúverðugleika fjárhagsupplýsinga sinna.
 
VIRTUS býður þjónustu löggiltra endurskoðenda í hæsta gæðaflokki.